|
|
12.09.2006 13:32:27 / heidas
»
12.09.2006 13:06:34 / heidas
Mig vantar
sjónvarp- láttu mig vita ef þú átt TVhanda mér, annað hvort
ódýrt eða gefins . Elmar ætlar að rífa af mér sjónvarpið
núna- helvítis kallinn. Hvað á ég þá að gera í vetur ef ég
hef ekkert sjónvarp- Elmar þá fer ég bara að stunda barina og
jammið á kvöldin, ert ekki ánægður með það ha ? En hvað
þarf hann annars að gera við sjónvarp, á
hann ekki að vera að læra öll kvöld, hefur ekki tíma til
þessa að glápa á sjónvarp, og þess á milli hann að
skralla svo ég sé enga glóru í þessu. Þið sjáið hvað ég hef
mikla trú á honum og því að hann ætli að minnka skrall og
rugl í vetur......
Nei nei segi svona ég redda mér þurfti bara
að eins að tappa af smá reiði svona í tilefni dagsins 
Rockstar í kvöld- veit nú ekki hvort ég
meiki að vaka en kannski ég vakni bara þá og horfi á kallinn en
annars er ágætt að sjá þetta bara á mið, endursýninguna og svo
kostninguna. En geggjað að geta kosið svona á mið-morgun með smá
fiffi.... en ég gerði það síðast og gat kosið alveg til 10 um
morguninn minnir mig.
Áfram Magni "Okkar"........ hí
hí
»
11.09.2006 13:59:59 / heidas
Já er það
ekki alveg týpískt af okkur íslendingum að vera alveg að tapa
okkur yfir þessu rockstar. Þetta er svona haust eurovision.
Við höldum auðvitað með okkar manni alveg eins og við höldum
með okkar lagi í eurovision, sama hver lélegt það er. En
þetta er nú skárri tónlist verð ég að viðurkenna, meira segja
mestu and-eurovisionar gera fylgst með rockstar og haldið
lúkkinu, þannig þetta hlýtur að vera kúl......
En allavega ég bíð spennt eftir
þri-kvöldinu og bíð ennþá spenntari eftir að vera boðin í rockstar
vöku, hvernig er það er ekki nóg um það ? hvað segið þið, ekki
ekki stemmari fyrir því ? Eða ætla kannski allir á players eða
sólon eða eitthvað, kannski er meiri stemming að fara þangað en
penpían ég nenni ekki að fara þangað sem er reykt, nenni ekki að
koma útúrreykt heim og fara að sofa í nokkra tíma og mæta svo til
vinnu nokkrum tímum seinna. En ég hef
engar áhyggjur það verður eitthvað skemmtilegt gert.....
Já það sem er nýtt í fréttum hjá mér er að
ég er að fara til Orlando núna í okt. Múttan verður 50 ára og við
verðum auðvitað að halda í hefðina (fórum neblilega til
orlando þegar pabbi var 50 ára og ég 25 ára). Þannig ég fer ásamt
hele familien til usa 20. okt og verð í 8 daga eða þannig það er
svo skrýtið þegar maður er að fljúga svona á milli því í rauninni
lendi ég hér 29. okt en legg af stað 28.okt. Það er ekkert skrýtið
að maður sé alveg út úr korti þegar maður lendir hér kl 7 að morgni
eftir 8 tíma flug og enn ekki farinn að sofa, allavega var ég um
viku að jafna mig síðast.
»
08.09.2006 09:19:26 / heidas
Já það eru
eflaust allir að velta því fyrir sér hver vinnur í Rockstar
og allir sem eru með eitthvað vit í kollinum gera sér
grein fyrir að það verður ekki Magni okkar.
Kannski líka sem
betur fer, ég meina 3 útbrunnir gamlir rokkarar, sem ja eru held ég
ekki þekktir neitt sérstaklega fyrir tónlist sína. Jú jú Gilby og
Jason eru þekkt nöfn en er það ekki bara vegna þess að þeir voru í
þekktum hljómsveitum, veit ekki til þess að þeir séu neitt hátt
skrifaðir sem tónlistarmenn. Og jú jú Tommy það vita allir fyrir
hvað hann er frægur, að ja hafa verið með einu helsta kyntákni
sögunnar og vera ja frekar frjálslyndur í tali sínu um allr sem
tengist kynlífi.
En að mínu mati
eru það Toby og Lukas


sem koma til greina og ég held
að Toby sé að koma sterkari inn. Dilana greyjið er alveg orðin
útbrunnin.
En hvað heldur
þú lesandi góður..... endilega kommentaðu...
»
07.09.2006 08:55:20 / heidas
Ég vakti
auðvitað glaseygð á úrslitin í rockstar í gærkvöldi. Geggjað
að hann sé enn inni, ég átti svo von á að hann myndir þetta
út, það er greinilegt að atkvæði vorra íslendinga eru að
skipta máli. Þannig næsta vika verður ekkert smá spennó
!!!
Pósturinn minn virkaði ekki þegar ég mætti
í vinnuna í morgun, það var verið að uppfæra eitthvað og vá ég var
alveg eyðilögð, ótrúlegt hvað maður getur verið háður þessu litla
atriði. Það er ekki einu sinni eins og ég sé að fá eitthvað
spennandi bara svona la la um hitt og þetta...
»
06.09.2006 11:42:50 / heidas
Hjólinu alræmda var ekki stolið, bróðir hans elmar tók það bara
og naði ekki í mig til að láta mig vita. Er þetta ekki týpískt af
strákum, þá er ég að tala um elmar að láta mig ekki vita, kannski
er þetta bara kvenneðlið að hafa áhyggjur af öllu 
Er að fara út að
borða á Hornið í kvöld með stelpunum í vinnunni. Hef ekki farið
þangað síðan ja man ekki hvenær, held á valentínusardaginn fyrir
mörgun árum. Akkuru er maður ekki duglegri við að fara út að borða,
nóg er um staðina í Reykjavíkinni og margir mjög góðir. Í útlöndum
fer maður liggur við á hverju kvöldi og kippir sér ekkert við að
borga um 2-3000 fyrir matinn. Er það ekki bara það sama og maður er
að borga hér og meira að segja er maturinn miklu betri hér á
klakanum, allavega miðað við á spáni (nema þó andarbringan mín á
Las Jarras..mmmm slef slef...).En allavega þá ætla ég að fara
samviskulaus og láta eftir mér að panta mér það sem mig langar í
.
Það er víst
landsleikur í kvöld; Ísland-Danmörk í fótbolta, já ég kemst ekki
hjá því að vita þetta eins mikil fótboltabulla og ég er... nei nei
en maður verður að vera með í umræðunum og gott að eiga vinkonu þá
sem er vel inni í boltanum Annars get ég nú alveg horft á
fótbolta... allavega svona 10 mín... og ekki er verra þegar þeir
eru að rífa sig úr búningnum. Ég sá smá út leik um daginn (man ekki
hvaða lið) en held það hafi verið í HM í sumar og þá voru þeir í
hvítum spandex bolum og ég var alveg jú jú kannski ég ætti að horfa
en þá fóru þeir í treyjur utan yfir, djö..... hvað á það að þýða
svo ég nennti ekki að horfa á þetta og fór að gera e-ð annað.
Semsagt er ég alger fótboltafan eins og má heyra en það er skrýtið
því ég er alveg handboltabulla og missi varla af leik en kannski er
ég bara heppinn því fótboltinn er svo tímafrekur.
jæja nóg í bili....
»
05.09.2006 09:59:03 / heidas
Þoli ekki
að hafa skrifað helling en svo dettur það út...
En ég fór í bíó í gær- á Step up, hún var
ágæt, svona unglingamynd en með sætum endi og sætum kroppi að dansa
haba haba.
En svo kom ég heim og þá var hjólið hans
elmar sem hann geymdi fyrir utan hjá mér farið , ég fékk vægt
sjokk og reyndi að ná í elmar en hann ætlaði að koma í kvöld og ná
í það og hjólagallan sem er inni hjá mér. En hjólið var læst fyrir
utan og þar sem elmar er fluttur upp á bifröst og er líklega með
lyklana af því þá finnst mér þetta svoldið skrýtið. En það kæmi mér
ekki á óvart að hann hafi beðið bróðir sinn að ná í það en mér
finnst það frekar skrýtið þar sem gallin er eftir heima, en það er
samt elmari lýkt að láta mig ekkert vita af þessu. Ég er búin að
vera að reyna að ná í hann í allan morgun og í gærkvöld en hann er
ekki með kveikt á símanum, líklega er hann bara sofandi enn
.
En elmar ef þú lest þetta drullastu þá á
lappir og í skólan og hringdu eða sms á mig um þetta helvítis hjól,
ég er að fá magasár yfir þessu helvíti.....
»
04.09.2006 13:54:20 / heidas
Hef nú
ekki mikið að segja en verð þó að reyna eitthvað. Helgin var
svona la la hjá mér, fór óvænt á djammið með fanney á fös. já
við ákváðum að kíkja aðeins í
bæinn þar sem við sátum báðar heima hjá okkur að gera ekki
neitt. En jú leiðin lá niður á oliver (vá hvað maður er
íhaldssamur) eftir smá trúnó hjá fanney Þar var mikið
dansað og tjúttað og fanney náði að brjóta eitt stykki
koníaksglas þegar hún var að sýna kúnstir á barnum (held að
það sé búin að setja bann mynd af henni við dyrnar ). Og af
einhverjum ástæðum þá var hún með nokkra sogbletti eftir
kvöldið, kannast ekkert við það , En það var eitthvað í
loftinu, hún byrjaði á að setja inn á mig klaka og auðvitað
verð ég að borga fyrir mig . En við sem ætluðum bara aðeins
og kíkja og vera komnar heim snemma náðum loks í leigubíl
milli 4-5 og komum okkur heim. jú ágætt kvöld nema aðeins of
mikið drukkið miðað við þynnkuna daginn eftir. En
laugardagurinn var alger leti og held ég hafi sofnað um 10
leitið yfir sjónvarpinu. Hvað er með þetta sjónvarp um helgar
það eru bara leiðinlegar myndir, en á virkum dögum er alveg
hellingur af þáttum svo að maður getur ekki slitið sig frá
imbanum.
Sunnudagur; vaknaði eldhress kl 9:30 og
skellti mér í gymmið (ég veit alger dugnaður í minni) og kíkti svo
á Elvu og Ísabellu litlu. En hún svaf bara eins og engill svo ég
verð að kíkja aftur til að sjá hana vakandi.
Í morgun á leiðinni í vinnuna þá var ég að
hlusta á útvarpið og þar var verið að gefa bíómiða, jú jú ég
hringdi og viti menn fékk miða, ég sem vinn aldrei neitt. Svo ég er
að fara í bíó í kvöld með Bryndísi á einhverja dans mynd, vissi
ekki einu sinni hvaða mynd þetta væri þegar ég vann miðan, en maður
afþakkar ekki fría bíóferð er það...
»
01.09.2006 13:07:46 / heidas
Já ég er
komin heim heil á húfi- gleymdi reyndar ökuskírteininu mínu í
bílaleigubílnum og Bryndís líka Nettar ljóskur
stundum.
Já innilega til hamingju Elva og Egill með
litlu dísina, Ísabellu Sól, ætla að kíkja á hana núna um
helgina.

»
28.08.2006 11:31:37 / heidas
»
16.08.2006 10:07:01 / heidas
Já ég
skrifaði heilan hellin í gær en það hefur víst bara gufað upp
eða eitthvað því það er ekki lengurtil staðar.
Já mín fer til spánar á morgun og er nú
loks held ég búin að leysa vandann með köttinn, já hver hefði trúað
að einu lítlu dýri gæti fylgt annar eins vandi. en ég er búin
að dobla Signý til að vera eitthvað, elmar eitthvað og svo þarf ég
aðeins að díla við afa um að sjá um hana í 2-3 daga . Það
mætti halda að ég væri með lítið barna eða eitthvað, því ég
vill ekki að hún sé alein heima í 2 vikur, ég vill að einhver
sé hjá henni til að halda smá félagskap I know it´s only
a cat, en hún er svo mikil dúlla og ég vill ekki að hún
verði geðveik þegar ég kem til baka. En elmar var feginn
að geta losnað úr þessari kompu sem hann býr í og vera heima en
hann er að fara í veiði og eitthvað og þar kom
vandamálið- svo í heildina er þetta allt elmari að kenna (alltaf
auðveldast að kenna honum um... hann á það skilið).
En ég er að fara út að borða með Signý (já
hún kom óvænt á klakann um helgina), Unni bryndísi og Guðný í
kvöld. Smá svona get together því hún verður svo farinn áður
en ég kem heim og líklega verður Unnur líka búin að eiga .Svo
þarf ég að skunda heim og henda smá í tösku (ekki mikið ég sver
). Svo ætlar elmar að keyra mig út á völl í fyrramálið, svoldið
að misnota vinagreiðana hjá honum en hann verður í fríi næstu 2
vikurnar frá þeim svo ég er ekkert með samviskubit 
Jæja ég blogga kannski að utan ef ég nenni,
það eru einhver netkaffi þarna sem ég get kíkt á ef ég verð ekki of
upptekin í sólbaðinu 
»
14.08.2006 15:53:49 / heidas
»
14.08.2006 11:57:50 / heidas
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=181638
Hér er allt
heitasta slúðrið og raunveruleikaþættirnir 
»
11.08.2006 12:20:53 / heidas
Þessa
dagana standa yfir gay pride dagar aí reykjavíkinni eins og
ég held að flestir muni taka eftir. Á morgun er gangan og
ætli maður kíkji ekki með stelpunum eins og við höfum gert
síðustu ár. Það er oft rosa gaman- hellingur af fólki og
mikið stuð á öllum. En það er eitthvað við þessa daga sem ég
held að strákar hræðast, allavega man ég ekki eftir að elmar
hafi viljað fara með mér síðustu ár, og ég held að bryndís og
unnur hafi líka farið einar. Það er eins og þeir forðist
þetta, halda kannski að einhver homminn ráðist á þá eða að
þeir fari að finna fyrir skrýtnum kenndum, nei segi svona en
yfirhöfuð þá eru gagnkynhneigðir strákar með mikla fóbíu
fyrir hommum og öllu hommatali, þetta er mjög skrýtið. Við
stelpur erum ekki svona hræddar við lessur þó maður sé ekkert
hrifinn af því að lenda í þvi að lessa reyni við mann en við
erum ekki með svona fóbíu. Og það er líka mikill
misskilningur hjá strákum að allar stelpur séu til í að vera
með annari stelpu, þetta er bara fantasía sem ég held að
meiri hlutinn ef ekki allir strákar eru með.
En nóg um það
við bryndís og unnur, ( veit ekki með guðný) erum að fara út að
borða í kvöld, held ég á B5 því þar er reyklaust og unnur er
komin ansi langt á leið og ekki það besta að vera innan um reyk.
Auk þess sem þar er góður matur og góðir drykkir ekki það að ég
sé að fara að drekka því ég ætla að nota helgina í að safna upp
kröftum. Er búin að vera svo ógeðslega þreytt upp á síðkastið að ég
ætla að slappa hressilega af. Þarf þó að vinna en það er nú samt í
lagi.
En það ætlar þú að gera um helgina
?????
»
10.08.2006 10:11:27 / heidas
Langar svo að
komast í frí- get ekki beðið. Það er núna akkúrat ein vika
þar til ég verð á flugvellinum á leiðinni út til spánar í
sólina. Er orðin aksoti leið á þessari helvítis rigningu og
er rosa ánægð að hafa farið norður í sumarið um
verslunarmannahelgina því annars hefði ég ekki fengið neitt
sumar hér á klakanum. En jú ég treysti á sólina á spáni í
ágúst- held að annað sé ekki hægt svo ég tek með mér
sólgleraugu og kem kannksi með smá sól heim í poka handa
ykkur ísfólkinu
»
Síður: 1 2 3
|
|